Drengstaulinn hann Rosalie eignaðist 2 unga í fyrrinótt! Annar heitir Liesel Meminger… hinn heitir ekki neitt.

Ég er alltaf af rembast í fitness… mæti endrum og eins og er alltaf úr takt. Hef reynt að mæta í mbl og hef haft 2 fína kennara (heitir það kennari í fitness?), 2 ungar stelpur sem eru bara svona passlegar. Önnur fór í ferðalag og er bara búin að vera á ferðalagi og veit ekki hvort hún kemur aftur. Hin fór til USA til að keppa í einhverju. Ég vissi það ekkert… var ekkert látin vita! Mætti bara lalalalala og stillti mér upp í þrengslunum. Og svo byrjaði afleysingarkennarinn… ofur góð og ýkt brosandi. Í GRÆNUM topp! Ég fór strax í vont skap. Græni toppurinn stakk mig í augun og þetta ýkta góða skap lét mig verkja á vissum stöðum. Ég fór í svo mikla fýlu að ég gerði mjög margt viljandi vitlaust og öfugt. KOMA SVO STELPUR! Þoli ekki svona brosandi köll! Ég VEIT ÞIÐ GETIÐ ÞETTA! Gubb gubb. Og ekki dofnaði græni liturinn á toppnum hennar. Greyjið konan. (Vona að hún sé ekki íslensk og lesi þetta)… (æ nú fæ ég samviskubit)… (ohhh fuck). En allavega toppaði hún geðvonskuna í mér algjörlega þegar hún sagði okkur að leggjast á bakið, pressa lendina niður í gólfið og spenna magavöðvana… svo gekk hún á milli og potaði í magann á fólki til að ath hvort maður spennti. Ég var alveg aftast og fylgdist með… hún spurði þessar feitu hvort þær findu e-ð og sagði „flott“ við þessar mjóu. Svo kom hún að mér og ég spennti af lífsins sálarkröftum… hún: „finnurðu e-ð?“ Ég: „jáhhh“… hún aftur (potandi í magann á mér og skælbrosandi): „ertu viss, finnurðu e-ð?“… ég: „á ég að lemja þig?“ ‘(nei, sagði það ekkert). En ok, það þarf ekkert að leggja mann í einelti og niðurlægja mann fyrir framan 20 sveittar kynsystur mans þó maður hafi smá mýkt yfir magavöðvunum. Guð og ég ein, vitum að ég er með massíva magavöðva rétt fyrir innan mýktina.

Svo fór ég í step í vikunni, hjá útlendingnum sem er alveg crasy. Hana fýla ég… hún segir bara… „hættið að grenja“ eða „þetta var vitlaust hjá Mette, geriði 30 í viðbót“… Hún er svo innilega ekki pædagogisk og reynir ekki að vera það og það finnst mér skemmtilegt fólk.

Eftir 90 sek verð ég að skipta um buxur… datt í hug að fara í 5 ára gamlar diesel buxur í dag!!! hahahaha ég er nú meiri brandarinn!

Ég fór í auka salsa á miðvikudagskvöldið… var eini byrjandinn sem mætti. Salsa draumurinn hrundi… ég næ þessu aldrei. Útlenski salsakennarinn minn tók mig í intensivkennslu (afþví að það voru svo fáir)… hann talar bara spænsku og svo spyr hann: „you understand?“ öhhh nei eða veit það ekki… ég tala sko ekki spænsku. En þarf að æfa mig í chiki chiki og hiphip 😉 Til að gera útlenska kennarann ánægðan 🙂

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *