Enn og aftur hefur ruglingur átt sér stað! Rosalie sem er klárlega strákur hefur verið í búri með Bill síðan 1. mars. Einmitt afþví að hún er strákur! En hvað haldið þið…? Haldiði ekki bara að hún sé fylfull!!! Jújú… í gær palperuðum við hana duglega og fundum fyrir nokkrum ungum! Gamli graði Bill stendur sig… eða allavega myndi ég segja að hann stæði sig, því það getur ekki hver sem er gert stráka ólétta!
Nú set ég allt mitt traust á Plantorama og bið til Guðs um að þau taki ALLA unga sem fæðast á næstu vikum/mánuðum (hef nefnilega grun um að Beatrix sé líka fylfull).
Ætla kannski að halda upp á afmælið mitt í sumar og er búin að gera óskalista (sem gæti þó breyst):
- hátalara
- sófa
- jeppling
- allskonar snyrtidót
- allskonar garðdót
- já og garðhúsgögn
- jeppa til að hafa á Íslandi
- föt úr ákveðnum búðum
Hlutir sem ég vil alls ekki fá (svona til að svekkja engan þegar ég myndi fara og skipta):
- gjafakort í Bilka
- gjafakort í Jysk (rúmfatalagerinn)
- Gjafakort í Harald Nyborg
- Abba tónlist
- Rasmus Seebach tónlist
- Idol tónlist
- x-faktor tónlist allstaðar að úr heiminum (þar er innifalin tónlist með ófríðu/feitu fólki sem hefur skotist upp í stjörnuhimininn)
- eurovisiontónlist
- listaverk sem mér finnst ekki flott
en þetta er ekki fyrr en í ágúst… svo bara róleg 😉
Er róleg ….. ;o)