har du nogen rigtig lækker mad?
í dag þegar við sátum úti og ég var að bíða eftir að kl. yrði sturta-fyrir-vinnu, kíkti nágrannabarnið með nýju kærustuna yfir til okkar. Kærastan sagðist heita X og spurði hvert mitt nafn væri. Síðan sagðist hún vera 5 ára og spurði síðan hversu gömul ég væri. 33ja… fyrir henni voru það víst tölur í annarri vídd. Síðan spjölluðum við og spjölluðum þangað til börnin fóru að leika dunda sér með nýja búfénaðinn. Kl. varð sturta-fyrir-vinnu og ég fór niður. Ég hafði lítið fyrir því að loka á eftir mér sem varð til þess að skyndilega sá ég 2 litla glókolla horfa á mig í sturtu…
Nýja kærastan: „Hvað ertu að gera…?“
Ég: „ööö ég er nú bara í sturtu…“
Börnin: „já“…. og stóðu bara þarna og horfðu á mig…
Síðan segir nýja kærastan: „har du nogen rigtig lækker mad?“ (áttu e-ð geggjað að borða)
Nágrannabarnið okkar: „ej, sådan kan du ikke spørge, hun er jo i bad…“ (svona spyrðu ekki, hún er í baði)
Börn eru yndisleg!
Þegar þú kaupir naggrís, þarf að hafa eftirfarandi í huga.
1. Lifir í 5 til 7 ár, jafnvel geta orðið 12 ára.
2 Þarf stórt búr til þess að líða vel
3 Búrið verður að vera hreint og fæðan fersk
4 Er félagslynt dýr og þarf athygli og æfingu daglega
5 Þarf umönnun þegar þú ert í burtu
6. Eru önnur dýr á heimilinu, sem geta verið saman. Kanínur og naggrísir eiga ekki vel saman..
7. Er ofnæmi í fjölskyldunni fyrir dýrahárum?
8. Naggrís geta þurft á dýralæknahjálp að halda, það kostar peninga.
9 Naggrís er nagdýr sem getur nagað húsgögn, teppi og leiðslur
**Að eiga naggrís er ábyrgð, sem þarfnast tíma og peninga**
Velja heilbrigt dýr, hvað þarf að skoða.
Hreinn mjúkur og skínandi feldur á þéttum skrokki með engin húð vandamál. Björt og skír augu. Sterkar og réttar fætur. Hrein og þurr eyru. Hrein í kringum endaþarm. Þögul og regluleg öndun, ekkert ískur við öndun. Tennur ekki langar eða skakkar. Hvernig hegðar marsvínið sér innan um hina naggrísina í búrinu.
Heimili naggríss.
Búrið ætti að hafa gólf úr plasti og opnast bæði að ofan og á hlið.
Fyrir einn naggrís þarf stærð að vera minnst 68 x 36 x 35 cm.
Fyrir tvo naggrísi þarf búrstærðin að vera 80 x 80 x 45cm eða 100 x 40 x 35 cm.
Lítið svefnhús helst úr viði þarf að vera í búrinu svo og drykkjarker hels sjálfbrynjari, fóðurskál, fóðurtrog fyrir hey eða gróffóður og undirlag (bedding). Það getur verið ágætt að nota kattasand undir til að halda búrinu þurru, en athugið fyst hvort naggrísinn reynir að éta sandinn, þá má ekki nota kattasand.
Ekki nota undirlag (spænir) úr furu eða sedrusvið, það getur valdið lifrasjúkdómum hjá naggrísum.
Fóðrun. Nýtt gras, hey, hrátt grænmeti og ávextir. Naggrísir nota ekki framfætur þegar þau borða, svo betra er að skera grænmeti niður í bita. Melónur og sellery eru góð sem aukabitar fyrir naggrísi. Auk þess þurfa naggrísir korn á hverjum degi. Ef gefið er blautt fóður skal tæma og hreinsa skálina eftir fóðrun, svo ekki verði eftir súrar leifar. Marsvín þurfa að hafa fóður allan sólarhringinn. Ef naggrísinn hoppar í matarskálina, þó þarf að þrífa hana oft, svo fóðrið verði ekki mengað. Hafið alltaf ferskt vatn hjá dýrunum.
Undaneldi. Kvendýrið getur átt unga allt að fimm sinnum á ári. Það getur verið erfitt að finna heimili fyrir alla þá unga, svo besta ráðið er að láta hana ekki eiga unga.
Hér hefur það frænka. Eitthvað fleira sem þú þarft að vita hmm mmm? Vissi t.d. ekki að marsvín og naggrís er það sama. Gastu ekki bara sagt það strax svo ég færi ekki að leita á goggle HVAÐ marsvín væru (og upplýst þar með fávisku MÍNA)?
Bendi alveg sérstaklega á athugasemdina: Nagrísir og kanínur eiga EKKI VEL SAMAN
Ó MÆ GOD!!!
Verð að játa mig sigraða……… hef skrópað hérna alltof of mikið undanfarið og hef gjörsamlega misst af því að það hafi fjölgað í fjölskyldunni!!!
Fyrst fannst mér þetta dáldið sætt…….. svo fannst mér það ekki lengur ……… svo fannst mér þetta alveg HRÆÐILEGT eftir að ég las upptalninguna frá henni Ástu (ég las það allt með einstaklega fræðsluþáttalegu röddinni minni)!!!!
Aumingjans greyins þú!!!!!
………….. og svo getur þú ekki einusinni farið í bað í friði!!!!!!
þú á þokkalega ALLA mína samúð!!!!!!
Dásamleg börn sem þú fékkst þarna í heimsókn…
En hvernig fór þetta áttirðu eitthvað gott að borða handa þessum elskum???
Kv. Begga (sem hefur ekki kíkt hérna við í laaaaangan tíma)
………… ég gæti alveg sætt mig við nýja færslu!!!! ……… já get alveg tótallí lifað með því!!!!!