Samkvæmt bláu möppunni í vinnunni er ég opinberlega í sumarfríi… vegna fermingarinnar muniði. Gengur fínt, búin að plokka upp yfir fimmhundruð fífla, tala við eldra fólkið sem gengur fram hjá við stuðnings göngugrindanna og vinna alveg slatta. Hálfasnalegt að hanga heima í sumarfríi í vitlausri viku… þessvegna læt ég læsa mig inni saman með fólki sem þarf að vera læst inni, læt reykja mig í hel, les óþarfa blöð eins og Woman eða geri tilraun til að lesa samfélagslega viðurkenndar bókmenntir kl 5 á morgnana. Segið mér annars í einlægni, er séns á að fá lungna/nýrnar/pissublöðrukrabbamein á einni nóttu??? þekkiði einhvern? Verð að fylgjast vel með mér í dag, er sannfærð um að þetta sé möguleiki… sérstaklega þegar öll nóttin er grá vegna reyks.

Svo má  helst ekki opna út… vegna þess að einstaklingarnir eru læstir inni. Löggan vill ekki að við opnum, nema bara gluggana, en það er bara hægt að opna rifu á þá… rifu sem engin getur flúið útum… ekki heldur reykurinn. Oft er fólki líka kalt, öllum nema mér… svona hefur þetta verið síðustu ca sjö ár. Í þeim skólum og vinnum sem ég hef verið í, hef ég þurft að berjast fyrir opnun gluggana… mér er alltaf heitt og hinum er alltaf kalt. Núna er ég reyndar ekki ein… Í „alvöru“ vinnunni minni eru nokkrar á breytingarskeiðinu og við erum „team“ því þær vilja opna gluggana, eins og ég. Það er líka annað sem ég á sameiginlegt með þeim… ABBA er á bannlistanum… þær segja að það fylgji breytingarskeiðinu… hmmm ég er nú bara rúmmlega 33ja og finn ekki fyrir einkennum breytingarskeiðsins, nema þá hitanum og ABBA.

Fermingin, enn og aftur… helsti undirbúningurinn þessa dagana er að æfa mig að ganga á gullskónum… Annars var ég að uppgötva að fermingin verður eins og austurvevrópskt brúðkaup… stendur yfir í marga daga!!! Hugsa að það væri brilliant að hlaða í frystikistuna áður en flokkurinn kemur, kaldur og svangur af klakanum.

En nú er víst komin tími til að fara úr blettótta rónahlýrabolnum, hætta að prumpa og drekka kaffi og gera mig klára fyrir göngugötuna í Sönderborg.

One Response to “

  • Veit að þú verður mest gordjöss fermingarmamman í gullskónum!!!
    ……. er enginn möguleiki á mynd???

    Gangi ykkur allt í haginn og til hamingju með daginn!!!
    (soddann hagyrðingur!!!)

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *