Myndavalið á facebook…?
Ég vaknaði í bítið og fór inn á sjálfa mig á facebook. Þá blöstu við þessar tvær myndir, hvor á eftir annarri.
Mamma setti aðra inn og ég hina. Hvað vorum við að hugsa?
En svona var veðrið gott inn við Holuhraun og í Krepputungum. Of margar flíkur voru óþarfar. Alveg eins og núna, eintóm sól og blíða á Héraðinu. Ég er bara alveg að stikna!
Læt síðan eina af unglambinu henni múttu gömlu fylgja með, en hún stakk sér til sunds í Holuhraunslækinn.