Í dag fór ég í Netto, mygluð og þreytt eftir krefjandi vinnudag… ruddist a hliðið og þvíngaði það upp og beint í flasið á manni sem klæðir sig eins og klár lögfræðingur, sem sagði: „nei, en rosalega gaman að rekast á þig hérna, hefurðu það ekki bara hrikalega gott?“
Ég: „ öhh jú takk, en þú?“
Hann: „jú takk, hva, það eru orðin ansi mörg ár síðan… !?! eru ekki 10 ár síðan við hittumst fyrst?“
Ég: „nei, tæplega“
Hann: „nú var það ekki á námskeiðinu og ferðinni hjá KJEGJRTIGNA?!!?“
Ég: „öhh nei“
Hann: „ég hef þó ekki reynt við þig…?!!? ennþá!?!“
Ég: „nei, ég var að vinna í leikskólanum þar sem dóttir þín var!“
Hann: „já, var það? –og brölluðum við ekki margt skemmtilegt þar?“
Ég: „nei, ekki minnist ég þess serstaklega“
Hann: „en guð hvað er æðislegt að sjá þig aftur… hafðu það sem allra best“
Ég: „öhh takk sml“

Þessi maður er ekki lögfræðingur, síður en svo… síðast þegar ég vissi var hann póstútburðarafleysingarmaður!
Þessi maður hefur líka farið yfir mörkin við „ að reyna við“ konur… það veit löggan!

Verð að muna að taka ælupoka af sjukrahúsinu til að hafa í töskunni minni!

9 Responses to “

  • einn alveg með pikk-upið á hreinu.. hahah

  • Linda Björk
    16 ár ago

    Góð………… ælupoka…………. eru þeir til á sjúkrahúsum??? Hélt að það væri bara í flugvélum og skipum!!!!

  • Ágústa
    16 ár ago

    …. hahha… og hann sem hélt hann gæti spilað með þig. Oj ég fæ bara hroll.

  • eg sjalf
    16 ár ago

    ju ælupokar eru til a sjukrahusunum… snilld… hægt ad mæla magnid, engin subbuskapur og hægt ad loka theim thegar folk er buid… elska tha 🙂

  • Dísa
    16 ár ago

    Girnó gæji….eða þannig. Vona að þú eigir birgðir af þessum ælupokum.

    Knús
    Dísa

  • Linda Björk
    16 ár ago

    Wów hvað þessi sjúkrahús eru nú orðin móðins ……….. hefði nú ekki trúað því ………… en tek þín orð fyrir það………….. bara um tilhugsunina um ælupoka fer maginn í mér í kollhnís!!!!

  • heheh… þessi var nú frekar góður… er þetta ekki sá sem ræddi hvað mest við Callesen á foreldrafundinum um daginn??? ;o)
    En vonandi færðu nú ekki not fyrir ælupokann aftur í bráð.
    Kv. Begga
    p.s. hrikalega flott herbergið ykkar, ég er bara græn af öfund yfir skáphurðunum þínum, mig langar líka í svona fyrir skápana mína 😛

  • OJOJOJ – var þetta sá gæi…þe. þessi af foreldrafundinum??? Vá þá skil ég vel að þig hafi vantað ælupokann…..Til hamingju með flutninginn – verð að fara að kíkja á þetta hjá ykkur. Kveðja Stína

  • eg sjalf
    16 ár ago

    takk fyrir kvittin allar…
    og Begga… sorry, vid vorum á undan med skápana 😉
    og jú, hvernig datt ykkur í hug ad thetta væri hann??? hehe

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *