flísar og Alice Cooper

í dag fórum við í flísaleit… fórum til Flensburg þvi vinnufélagarnir hafa mælt með flísabúð þar… tókum ákvörðun um að kanna málið…

Ætluðum að byrja á að fara í Aldi í FördiPark því ég elska ákveðið kjöt þaðan.
Var svo svöng að við urðum fyrst að borða… Grillpfanden var næst okkur… höfum ekki borðað þar siðan árið sem við fluttum til Sönderborgar… höfðum heyrt að Grillpfanden hefði breyst… batnað…
Það er bara rugl… bara kjaftasaga… líklega líða mörg ár þangað til við borðum þar aftur…

En svo fórum við í Aldi… þegar ég stakk tungunni inní eyrað á Fúsa yfir kjötkælinum, gengu 3 konur sem voru annarrar trúar en við, útur búðinni… það var nú ekki ætlunin… vissi ekki að þær voru að horfa…

Svo fórum við í Praktikeren… í fyrsta skiptið… þrátt fyrir að þessi búð sé MJÖG fræg!
Fengum að taka eina flís með okkur heim… þessa skástu!

Svo fórum við í Carro… flísabúðina… jeminn þar voru margar flottar flísar… svoldið dýrari en í Praktikeren… hvernig skrifar maður annars Praktikeren… ? kann náttl ekki þýsku!
Tókum 2 flísar með okkur heim… nu standa þessar 3 flísar hlið við hlið niðrí herbergi og útfrá þessum 3 mismunandi flísum á ég að geta séð hvernig allur kjallarinn kemur til með að lýta út, … yeahhh right.

Núna rétt áðan var ég að fletta flísabælkingum, baðinnréttingabæklingum og Bo Bedre… held svei mér þá að ég hafi fengið bólu… þetta er meira en ég ræð við!
Fórum til Flensburg i dag með fókus á dökkgráar flísar… sáum Stonehenge, Vulkan og Bergen…
Sá svo í Bo bedre franskar flísar sem eru úr sandsteini… juuu hvað þær eru flottar…

Svo verður maður að hugsa um baðinnréttinguna… ja og eldhúsinnréttinguna… svona til að reyna að fá heildarmynd á dæmið… finnst ég þurfa að hugsa of mikið í kvöld…

En í gærkvöldi þurfti ég ekki að hugsa mikið… Alice Cooper átti hug minn allan… hann var frábær… mikið betri en ég bjóst við… enn mikið veikur i lokinu og mjög afdankaður… en alveg eins og hann átti að vera… yndislegur… tók m.a.:„ school is out“, „billion dollar babies“ og að sjalfsögðu „poison“…
Hann slátraði ekki hænu, heldur barni og var hengdur…

alice

(sjá myndir á facebook)
Mölleparken sem tónleikasvæði er náttlega æðislegt… gamla fólkið og endurnar endurnýjuðust og við Fúsi vorum yfir okkur hamingjusöm þegar við röltum heim í rigningunni.

Jæja aftur í bæklingana…

3 Responses to “flísar og Alice Cooper

  • Grétar
    16 ár ago

    Ég sé að tónlistarsmekkur þinn hefur lítið þroskast síðan við vorum á Eiðum fyrir „nokkrum“ árum síðan! 🙂

    Með þetta flísadæmi (þ.e. að sjá fyrir sér veggina) þá er þetta bara spurning um nokkrar mínútur í Photoshop og málið er dautt.

    Kv. Grétar

  • Já, það þarf mikið að spá og spekulera í sambandi við þetta allt saman, en ég er sammála síðasta ræðumanni hérna að photoshop gæti nú gert helling til að hjálpa þér að sjá þetta og ég held að þú þekkir nú einhvern sem er nokkuð fær í því forriti, svo að nú er bara að blikka hann.
    Gott að það var gaman á tónleikunum með Alice Cooper, Stebbi hefði trúlega fílað þetta vel, en þetta er ekki minn maður svo að ég hefði aldrei haldið út alla tónleikana, held ég.
    En annars vorum við líka í Flensborg í gær og sáum meira að segja bílinn ykkar fyrir utan Praktiker, þegar við vorum að fara frá Förde Park og niður í miðbæ.
    Gangi þér vel að ákveða með flísarnar.
    Kv. Begga

  • nei Grétar… ég hef alls ekkert breyst… 😉
    Ert þú enn að leika þér með tannbursta fólks… ? hehe

    ja kannski er photoshop bara málið… annars er ég að fá einvherja mynd af þessu í hausnum ámér… eftir að hafa skoðað blöð í marga klukkutíma…
    😉

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *