kjólinn

Hlakka svo til í kvöld… tónleikar með Alice Cooper… verð nú að viðurkenna að væntingarnar eru ekki það miklar að ég hefði tímt að borga mig inn… held að hann sé nú orðin hálf afdankaður og ekki minna veikur í lokinu en i gamla daga! En aftur á móti datt mér ekki í hug að afþakka frímiða… hlakka til að heyra POISON… sem hann hlýtur að taka…
Það verður sérstakt að rölta yfir götuna með teppi í kvöld!
Sérstakara en þegar við hjóluðum a Roger Waters (Pink Floyd) í fyrra.

Grunar að manninum mínum finnist innihald fataskápsins míns, vonlaust… alveg gjörsamlega vonlaust!
Í fyrradag , þegar ég kom heim úr vinnunni , fann ég kvittun á glámbekk… úr Message.
ég rauk upp í herbergi… þekki minn mann og veit hvar hann felur gjafirnar 😉
og viti menn… pink pakki beið min með eftirvæntingu… enn einn kjóllinn… elska kjóla!

One Response to “kjólinn

  • Frétti að það hefði bara verið gaman í Mølleparken í gærkvöldi (í gegnum sms sem Stebbi fékk).
    Geggjað að vera alltaf að fá svona skemmtilega pakka ;o)
    Kv. Begga

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *