var að enda við að setja jehovas vitni á pláss… tvær eldri konur sem spurðu hvort ég hefði e-ð spáð í framtíðina… ég svaraði auðvitað að ég hefði spáð mikið í hana…
„já einmitt“ sögðu þær… o“g hefurðu spáð í hvað framtíðin kemur með sér… (ooo ég veit ekki hvernig maður þýðir þetta)???“
„já“ sagði ég.
„já“ sögðu þær… „viltu þá ekki fá bæklinga til að fá betri innsýn í allt þetta?“
„nei“ sagði ég… því mín sýn á framtíðina er allt önnur en ykkar…“
„en það sem stendur í biblíunni….“ reyndu þær að segja
en ég greip frammí fyrir þeim og sagði: „ykkar túlkun og OKKAR túlkun á bibliunni er tvennt ólíkt… ég fer eftir OKKAR túlkun“
„ó“ sögðu þær…
og ég sagði: „þessvegna hef ég núll áhuga á ykkar boðskap“

þær héldu nefnilega að ég um leið og ég opnaði hurðina yrði ég auðvelt fórnarlamb… í náttbuxum, lopapeysu, með morgunhár og bólótt!!! á leiðinni upp úr kjallaranum hafði ég samt sparkað af mér asics skónum og svörtu misstóru sokkunum… passaði engan vegin við náttbuxurnar sem eru af dóttir minni og ná bara niður ad hnjám…

Svar við kommentum:
ég er búin að fá vinnu á þvagfæraskurðdeild (K22 urologi) a sygehus sönderjylland sönderborg… og það er líka akut þjónusta á henni… það er það sem gerir hana spennandi… + að það eru flestir sjúkl karlmenn sem eru frekar sprækir… og örfáir terminal… hress deild.
ég undraði mig bara að miðað við heimsóknir á síðuna voru óvenjulega fá kvitt… kannski heldur fólk í alvörunni að ég sé gay… og þorir ekki að kvitta þvi þetta er smitandi djöfull.

Eurovision… hvað gerðist??? ég sver það… ég kaus ísland… í fyrsta skipti í mörg ár… ekki að ég hafi búist við að þau ynnu… en ég bjóst við að þau yrðu ofar… þessi íslenska hefur verið í of miklum fötum… það er eina skyringin.

En hvad varð um slovinia … var thad ekki hun sem var svo falleg… eda var það kannski bara Ukraine allan tímann? og Sverge… þegar ég verð fullorðin ætla ég að vera með hennar kropp… og nefið hennar Paris Hilton!

Lokaspretturinn er í fullum gangi… ég hleyp eins hratt og ég get…

5 Responses to “

  • Linda Björk
    17 ár ago

    sko ég á ferðinni um miðja nótt……… og ég kvitta!!!!
    Tillykke með vinnuna!!!!
    Auðvitað sagðir þú Vottunum til syndanna…….. vissi að þú myndir nú ekki fara að klikka á svoleiðis smáatríðum!!!!
    Gangi þér vel á síðustu metrunum……… mundu bara að anda!!!!
    Kveðja af Klakanum
    ég

  • Ágústa
    16 ár ago

    Til hamingju með vinnuna :o)

    Og góð svörin hjá þér til jehóvanna… haha… ég þoli ekki votta jehóva og vona að ég lendi ekki í þeim hér.

    Gangi þér vel á lokasprettinum.

  • Guðrún Þorleifs
    16 ár ago

    Til hamingju með vinnuna!!!
    Jehóvar eru ein af plágunum. . .
    Gangi lokaspretturinn vel 🙂

  • Til hamingju með vinnunna:o)
    Gott hjá þér með þessa blessaða Jehóva…er nú nágranni Jehovana….ALLA:o/…Samkomuhúsið…kirkjan…eða hvað þetta nú er…er í næsta húsi…en hef frétt að þau láta nágranna sína í friði…sem betur fer:o)
    kveðja Beta

  • hahah… það hefur nú verið ákveðið sjokk fyrir þær greyin að fá þig svona til dyra og ekki hefur það batnað þegar þú svaraðir þeim á þennan hátt… GO DAGNÝ!!!
    Haltu nú vel á spöðunum, ertu kannski búin að senda allt út í yfirlesningu?
    Gangi þér alla vega SVAKALEGA VEL!!!
    Kv. Begga

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *