sunnudagur til sælu!

veðrið er æðislegt…

þessvegna:

*erum við Svala búnar að fara út að hlaupa í morgun
*nenni ég ekki að læra
*fóru Fúsi og Svala með boltann upp á KærvejStadion (fótboltavöll)
*viðrum við sængurnar (gerist annsi oft þessa dagana)
*langar mig bara að vera úti
*dundaði ég mér í garðinum í gær því veðrið var líka gott í gær

var að fá upphringingu frá Fúsa

F: „veistu hvað við erum að gera?“´
D: „nei“
F: „við sitjum á bekk við Mölledammen og horfum á boltann reka stefnulaust“

semsagt… Svala var að drippla boltanum á stignum hjá Mölledammen (tjörn hér rétt hjá) og missti boltann útí…

Vonandi kemur hann að landi einhversstaðar…

njótið veðursins

5 Responses to “sunnudagur til sælu!

  • Dísa
    17 ár ago

    Takk fyrir síðast…virkilega notó bara. Já veðrið var sko yndislegt í gær og ég stalst aðeins í garðvinnu líka. Maður meikar hreinlega ekki að hanga inni yfir bókum og tölvu í þessari blíðu. Vonandi rak boltann að landi fyrir rest…eða eru þau kanski enn að bíða?

    Knús
    Dísa

  • Hæ hæ takk fyrir kveðjuna, líka fínt veðrið hjá okkur fórum eftir hádegið og svömluðum í heitupottunum 🙂

    knús til ykkar Sessa og co

  • Hafdís
    17 ár ago

    Ég fór nú bara út með tölvuna og lærði, mæli með því 😉

  • Linda Björk
    17 ár ago

    Frábært hvað það er komið gott veður hjá ykkur……….. líka hjá okkur, aldrei þessu vant!!!! Ef maður horfir framhjá smá snjókomu þá er þetta bara fullkomið!!!
    Kv. ég

  • Frábært þegar veðrið er svo flott eins og um helgina.
    Hehehe… ég fékk feðginin í smá heimsókn þegar boltinn var kominn til þeirra aftur. Og þau voru alsæl með fótboltatúrinn, sérstaklega Svala, þar sem hún rústaði pabba sínum og þótti sko ekki leiðinlegt að segja frá því.
    Vertu nú dugleg að læra skvísa.
    Knús, Begga

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *