svona blogfærsla i midjum undirbuningi fyrir audit…!

Ég elska og ofnota “synonyms” möguleikann í wordinu… nefnilega ekkert mjög langt síðan ég fattaði það… og nú er tungumálið orðið miklu breiðara hjá mér 😉

Kíkti á deildina mína áðan… svona til að vita hvort þau gætu ekki alveg verið án mín… hvort þeir sem ættu að vera lifandi væru það ekki osv.
Ætlaði líka að tala við vejlederen minn (leiðbeinandann) en þá lágu bara skilaboð frá henni til mín… ég hringdi svo í hana og viti menn… hún er raddlaus!!! Hvernig fer þetta á miðvikudaginn ef hún verður ekki orðin góð…?

Fúsi spáir svo og spökulerar þessa dagana… hvernig fataskápar??? Hvernig gólfefni??? Lausn á þessu og lausn á hinu… og núna er sú hugmynd komin upp að rústa gólfinu í kjallaranum… og þessu veltir hann fyrir sér fram og aftur og vill náttl ræða þetta… og ég bara hef ekki auka pláss fyrir þesskonar pælingar þessa dagana… en reyni að virka áhugasöm og sveimér þá ef það tekst bara ekki… hef allavega ekki heyrt “þú ert sko ekkert að hlusta á mig…” setninguna.

Komst aðþví seint í gærkvöldi að ég á að skila í dag en ekki á morgun… hvað gerði ég ef ég ætti ekki vini sem lækju endalaust í mig mikilvægum upplýsingum…???
Hef nefnilega ekki kíkt á skólamailinn minn síðan í byrjun oktober… en tilhvers… hin kíkja og láta mig svo bara vita 😉

Best að reyna að klára…
Yfir og út

One Response to “svona blogfærsla i midjum undirbuningi fyrir audit…!

  • þá ertu líklegast búin að skila! til hamingju með það! hilsen

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *