myndirnar

eru á leiðinni, búin að sitja ótrúlega lengi og flokka og raða í möppur, þannig að næsta skref er að minnka næstum 300 myndir… og raða þeim og skíra og allt það!!! Þannig að ykkur er óhætt að kíkja einhverntímann í haust.. he he he
Fúsi var að segja að ég væri alltof fljótfær, að tilkynna síðuna svona virkilega ekki tilbúna, hann sagði að ég væri algjör &$#“$%. Svona eru þessir fagmenn, allt þarf að vera perfect, en þetta er bara alltof mikið dundur fyrir mig, Fúsi á bara alveg að gera hana og ég gæti látið mér nægja að skipta mér af….

Þegar Fúsi fer með köku í vinnuna (sem er ekki ósjaldan), þá fær hann leyfi hjá mér til að segja að hann hafi bakað alveg sjálfur. Stundum á hann ekkert í kökunni en stundum á hann hluta. En ég segji alltaf já, hann má alveg segjast hafa bakað alveg aleinn. Og kvennsunum í vinnunni finnst hann æði….

Þannig að mér finnst alltílagi að ég eigni mér algjörlega heiðurinn að gerð heimasíðunnar… eða breytingu, þetta er nú ekki alveg ný síða.

Með konunglegri kveðju
Dagný Sylvía webmaster

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *