my first blog

O M G ég er komin með blogg…. alveg eins og Maggi bróðir og allir hans vinir!!! Mér finnst ég vera algör PÆJA #$%&“!!!
Og nýja heimasíðan okkar í fullum smíðum og nú verð ég að nota í­slensku stafina þegar ég er að blogga. Annað gengur ekki, tekur smá lengri tíma en kemur fljótt.
Myndirnar fara vonandi fljótlega að koma inn, Þad er nú aðal tilgangurinn með þessari síðu og mín tjáningarþörf, sem kemur í bunum annað slagið.
Fúsi á nú samt 99,9% heiðurinn af þessari síðu, hann er yndislegur en þetta verður dýrt… Það er alveg búið að fara heilt kvöld í að skipta út síðunni, kannski get ég saumað e-ð á hann í staðinn…
Núna ætla ég að ath hvort þetta virkar…
G N
og sofið rótt
Dagný og Fúsi

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *