jokur

Eins og venjulega fór Birkir snemma í háttinn, kyssti konuna góða nótt og steinsofnaði.
Seinna um nóttina vaknar hann og sér gamlan mann inn í svefnherberginu,klæddan í hvítan kufl. „Hvað í andskotanum ertu að gera í svefnherberginu mínu ?“ segir Birkir reiður.
„Þetta er ekki svefnherbergið þitt,“ segir maðurinn, „þú ert kominn til himna og ég er Lykla-Pétur.“
„HVAÐ? Ertu að segja að ég sé dauður ? Ég vil ekki deyja… ég er allt of ungur og á eftir að gera svo margt,“ segir Birkir. “ Ef ég er dauður þá vil ég að þú sendir mig til baka á stundinni!“
„Það er nú ekki svo einfalt,“ Svarar Pétur. Þú getur aðeins snúið til baka sem hestur eða hæna. Eða haldið áfram að vera dauður auðvitað.

Birkir hugsaði þetta í nokkrar mínútur og komst að því að það er örugglega ekkert auðvelt líf að vera hestur, úti að hlaupa allan daginn með einhvern á bakinu, svo af tvennu illu þá væri líklegra betra að snúa aftur sem hæna. Það væri ábyggilega letilíf. „Ég vil snúa aftur sem hæna…“ samstundis var Birkir kominn í hænsnakofameð fallegar fjaðrir og allar græjur. En almáttugur hvað honum var illt í afturendanum. Það var eins og hann væri að springa!
Þá kemur haninn…. „Hæ þú hlýtur að vera ný hérna. Hvernig hefurðu það?“
„Allt í lagi býst ég við“ Svarar Birkir en mér finnst eins og rassinn á mér sé að springa!“Þú ert bara að fara að verpa. Hefurðu aldrei verpt áður? Neiiiiiiii…… hvernig geri ég það? „Gaggaðu tvisvar og þrýstu svo af öllu afli“ Svarar haninn.
Og Birkir gaggar tvisvar og rembist svo eins og hann eigi lífið að leysa.skömmu síðar liggur hans fyrsta egg á gólfinu. „Vá segir Birkir þetta er meiriháttar svo gaggar hann aftur tvisvar og byrjaði að rembast og eitt egg í viðbót liggur á gólfinu. Þegar hann gaggar í þriðja sinn heyrir hann konuna sína öskra: „Vaknaðu Birkir, í gudanna bænum. Þú ert búinn að skíta út um allt rúm.

7 Responses to “jokur

  • hahahhahahahhahahahha þennann fattaði ég hahahha en ég hugsaði svosem um allt aðra hluti en kúk þarna ofar í brandaranum. en ætla ekki að segja orð meir um það hér.
    sorry að ég komst ekki í körfu var að vinna.. en er orðin þunglynd af hreyfingaleysi.. spurning um að taka streetball soon.. búin að segja þetta samt alveg 100x en samt gerum við aldrei neitt í þessu heheh 🙂

  • Dísa
    17 ár ago

    Þessi er alltaf góður….Ég er til í streetball….
    Knús
    Dísa

  • get kannski ekki sagt ad eg líði af hreyfingarleysi… en er samt til i street… soon…. er samt ekki verra ad vera i þessu roki???
    mér finnst þessi alveg brilliant… þýddi hann yfir á dönsku um daginn og hló svo mikið að ég þurfti að skrifa hann niður… annars skyldist ekkert… heheh

  • ja og Maja… thu ert sko ekki að spilla blogginu mínu… þar sem þú Dísa og Begga virðast vera þær einu sem lesa;) þær eru ekki svo sart… vel?

  • heheh nei nei þær eru vanar ruglinu í mér 🙂 og hey mig vantar stimpl frá þér á blggoinu mínu ég er að safna 20 kommentum svo ég geti haldið áfram að blogga.. það brennur á mér ..

  • Guðbjörg Valdórs
    17 ár ago

    Hæ frænka.
    Þessi er bara góður 🙂
    Ætlið þið s.s. að koma á „the ættarmót“ í sumar? Spurning að skella sér bara fyrst það verða svona margir.
    Kveðja frá Köben.

  • Maja: Buin

    Guðbjörg… þið komið á ættarmót… ef þið verðið á landinu… ætluði ekki að flytja í sumar??? Þetta verður örugglega rosagaman þ´ví það ætla svo margir rosaskemmtilegir…. 🙂

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *