Leiðist…
í dag 8. dagur af 14 í haustfríi… hverju á ég að finna upp á í dag…? Ég er búin að bursta tennurnar og baka pönnukökur… hvað er meira hægt að gera?
Hugsi hugsi… Ég fór upp á efri hæðina og bauð frumburðinum og prinsinum af Wales á rúntinn til Flensburg til að kaupa kjöt.
Frumburðurinn: „NEIIII“
Prinsinn af Wales: „No thank you, I´m fine thank you…“
Mér varð á að vekja þau…
Þau urðu frekar pirruð…
Ég skammast mín mikið… á að vita betur en að ýta við sjálfráða unglingum á þessum tíma sólarhringsins…
Er að fá hugmynd… frábæra hugmynd… e-ð sem gerir mig að betri manneskju (held ég).
Hugsi hugsi… já held það bara… ætla að prófa nýju hugmyndina mína… sem er frekar brilliant!
Kannski verður hún opinberuð.
Eruði kannski með aðrar hugmyndir handa mér um hvað sé hægt að gera á 8. frídegi ef mín klikkar?