Gettu búð… og mikilvægi búðarbúninga.
Búðarbúningar hafa alltaf skift okkur fjölskylduna miklu máli. T.d. sótti ég stanslaust um vinnu í Hagkaup því grænu bolirnir voru svo fallegir. Í Matvörumarkaðnum mátti ég vera í mínum eigin fötum og fannst það ásættanlegt.. Í shell voru bolirnir rauðir og það hentaði mér engan vegin. Rauður búðarbúningur er bara ekki að gera sig. Ekki á neinni manneskju. Aldís vinnur í Netto og kvelst í svörtum bolum. Ég vinn reyndar ekki beint í búð en samt í svakalegu þjónustustarfi og panika á hverjum degi í hvítu dragtinni minni.
Við verslum EKKI við eftirfarandi fyrirtæki vegna glataðs klæðnaðar:
- Netto
- Penny Lane
- Bilka
- Kontor Syd
- Lögreglustöðina
- Fona
- Inspiration
- Slökkvistöðina
- Bröggeriet
- Skurðdeild sjúkrahússins
- Ekkert á sjúkrahúsinu
Einu einustu fyrirtækin sem við njótum þess að hafa við- og samskifti við eru:
-Jensens Böfhus… Þessi vesti, ó þessi vesti… við njótum hvers bita margfalt vegna þessarar litardýrðar! Ætti að fara mikið oftar á Jensens (oftar en 3svar á 12 árum).
(Þessi Jensens böfhus mynd er stolin af netinu og það stóð ekki hver tók hana)
-Og þessi búð (sjá mynd að neðan)… í þessa búð hafa ófáar atvinnuumsóknirnar farið. Báðar dætur mínar ÞRÁ að klæðast þessum gullfallega eiturgræna lit. Ég hef stutt þær og hvatt. Ég hef hringt í verslunarstjórann og hitt hann og mútað og strippað. Ekkert hefur enn virkað en okkar tími mun koma. Ég mun einhverntíman fá ánægjuna af að pósta mynd af dætrum mínum í þessum græna galla á facebook og sprengja persónulegan „like-skala“.
Allt er vænt sem vel er grænt… veistu hvaða búð (keðja) í Sönderborg þetta er?