páskar
Ef maður hefur gert eftirfarandi hluti á páskatímabilinu…. svosem að:
- sóla sig
- fara í mæðgnatúr til Kolding
- sóla sig
- fara í hjólaístúr um fallegasta svæði Sönderborgar
- vinna á helgidegi
- vinna í garðinum
- fara í mat til góðra vina
- sóla sig
- fara á djammið með góðri vinkonu
- sóla sig
- vinna örlitið (bara örlítið) í garðinum
- sitja niður við höfn í hvítvíni með góðri vinkonu
- sóla sig
- baka kökur með eiginmanninum
- sóla sig
- vinna meira í garðinum
- fara í yndislega siglingu með bestu nágrönnum ever!
- ríða á asna útí náttúrunni
- fara í mat til góðra vina
- vinna aftur á helgidegi
- mæta lækni í hvítum kjól
- fá eiginhandaráritun af Mikael V. Knudsen frá aðstandenda sjúklings (sem fór á leik Flensburg-Handewitt og sagðist skyldi redda okkur Kirsten áritun frá honum og stóð við það)
- sóla sig
- byrja á fyrsta megruninni á ævinni… til hamingju ég!
- halda áfram í páskafríi fram í maí…
… þá hafa páskarnir verið bestu páskar í lífinu manns! 🙂